13.12.2006 | 23:24
Umræður í Kastljósi: dylgjupólitík Dags
Ég tók þátt í umræðum í Kastljósi í kvöld við Dag Eggertsson borgarfulltrúa og Helga Seljan fréttamann um það sem Kastljósið kallaði pólitískar ráðningar framsóknarmanna í störf hjá borginni. Var sú umræða framhald af dylgjupólitík sem Dagur hefur í auknum mæli verið að tileinka sér í borgarstjórn upp á síðkastið, eins og kom vel fram í gagnrýni hans á sölu Landsvirkjunar á dögunum og lóðaviðskipti í Norðlingaholti. Virðist honum mjög í mun að tengja persónur við slíka umræðu og sést oft ekki fyrir í þeim efnum fremur en ýmsum öðrum.
Stóra bomban sem Dagur hugðist afhjúpa í kvöld snerist um tímabundnar verkefnaráðningar fjögurra einstaklinga sem tengjast Framsóknarflokknum. Um þær var skilmerkilega fjallað í innslagi Helga Seljan fyrir umræðurnar og fagna ég því að þannig sé sagt frá verkefnum og ráðningum á opinskáan hátt og bíð spenntur eftir því að aðrir flokkar verði teknir fyrir í framhaldinu og jafnvel boðið upp á sögulega upprifjun hjá fyrri meirihlutum í borginni. Þarf ekki að fjölyrða um það hvernig nánir samherjar Dags stóðu að slíku hér fyrr á árum, meðan þeir voru enn við völd í Ráðhúsinu.
Dagur brást hins vegar ókvæða við þegar talið barst að honum sjálfum. Hann átti ekki orð til að lýsa hneykslan sinni á því að tengd væri saman ráðning hans við Háskólann í Reykjavík og seta hans í skipulagsráði. En á sama tíma dregur hann hvergi af sér í ómálefnalegri gagnrýni á allt og alla í kringum sig. Margur heldur mig sig, sagði máltækið.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ræðir umræðurnar í kvöld á heimasíðu sinni og segir:
Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, lét þá Helga Seljan, þáttarstjórnanda, eða Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn, ekki eiga neitt inni hjá sér í Kastljósinu í kvöld, þegar gerð var hörð hríð að honum með ásökunum um, að framsóknarmenn hefðu hlotið verkefna-bitlinga hjá Reykjavíkurborg í skjóli Björns Inga.
Eftir að Björn Ingi vék að því við Helga, að hann hefði verið ráðinn til starfa í Kastljósinu án auglýsingar, svo að hann tæki dæmi af því, hvernig ráðið væri til starfa hjá opinberum aðilum, hvarf broddurinn úr spurningum Helga. Þegar Björn Ingi sagði eðlilegt, að menn huguðu að starfi Dags B. Eggertssonar í Háskólanum í Reykjavík, eftir að fyrir lægi, að hann hefði gefið háskólanum eina af dýrmætustu lóðum borgarinnar, átti Dagur varla meira erindi í þáttinn vegna hneykslunar.
Sú athugasemd Björns Inga var fyllilega réttmæt í þættinum, að ekki hafi verið einleikið, hve æðstu embættismenn Reykjavíkurborgar létu mikið að sér kveða í formannskjörinu í Samfylkingunni til stuðnings Ingibjörgu Sólrúnu gegn Össuri Skarphéðinssyni.
Umræðurnar voru óvenjulega líflegar og þróuðust á annan veg en Helgi Seljan vildi, vegna þess að Björn Ingi tók svo rösklegt frumkvæði í þættinum. Ekki var nóg með, að hann stjórnaði umræðunum og segðist eiga ríkan þátt í að stjórna borginni, heldur sagðist hann einnig hafa ráðið Árna Pál Árnason, sem nú er þingmannsefni Samfylkingarinnar, til að vera ritara nefndar forsætisráðherra um fjármál stjórnmálaflokkanna. Hann liti ekki aðeins á flokksskírteini, þegar hann væri að velja fólk. Halldór Ásgrímsson var forsætisráðherra, þegar þetta gerðist.
Ég hef satt að segja lítið gaman að því að ræða stjórnmál á slíku plani og hef ekki haft frumkvæði að því. Ég hef miklu fremur áhuga á að leysa verkefni stjórnmálanna í góðri sátt og tek dæmi af frístundakortinu sem varð til í samráði allra flokka og er eitt mesta framfaramálið í borginni um langt árabil. Ég tel að þannig ættu stjórnmálin fremur að vera, frekar en dylgjum og skeytasendingum manna í millum. Það gefur ekki góða mynd af stjórnmálunum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Fjölmiðlar
- Vef Þjóðviljinn
- Leiðari Mbl. og Staksteinar
- Mannlíf
- Ísafold
- Viðskiptablaðið
- Vísir
- Ríkisútvarpið
- Morgunblaðið
- Blaðið
Áhugavert
Einstaklingar
- Matthías Johannessen
- Óli Björn Kárason
- Svanhildur Hólm
- Steingrímur Sævarr
- Arna Schram
- Marsibil Sæmundardóttir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Ómar R. Valdimarsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Siv Friðleifsdóttir
- Árni Þór Sigurðsson
- Hallgrímur Indriðason
- Þórarinn Eldjárn
- Stefán Pálsson
- Jón Axel
- Jakob Hrafnsson
- Bjarni Harðarson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigurjón Magnús Egilsson
- Sigmar Guðmundsson
- Andrés Magnússon
- Sæunn Stefánsdóttir
- Björgvin G. Sigurðsson
- Egill Helgason
- Össur Skarphéðinsson
- Pétur Gunnarsson
- Björn Bjarnason
Bloggvinir
-
halldorbaldursson
-
gaflari
-
salvor
-
dolli-dropi
-
adalheidur
-
agnesasta
-
andres
-
arnfinnur
-
alfheidur
-
bardurih
-
bjorgmundur
-
bleikaeldingin
-
gattin
-
cactusbuffsack
-
ea
-
feministi
-
framsokn
-
gesturgudjonsson
-
grettir
-
vglilja
-
gudmbjo
-
garon
-
gunz
-
skulablogg
-
gullistef
-
guru
-
gvald
-
hallgrimurxd
-
heidathord
-
730
-
herdis
-
heringi
-
hlini
-
hlynurh
-
kolgrimur
-
tulugaq
-
don
-
hrannarb
-
hrolfur
-
ingisund
-
ingo
-
id
-
hjaltdal
-
julli
-
komment
-
killerjoe
-
mafia
-
nanna
-
poppoli
-
olafurbj
-
olafurfa
-
obv
-
bonham
-
ottarfelix
-
pallkvaran
-
pkristbjornsson
-
perlaheim
-
hux
-
vitaminid
-
siggie
-
siggisig
-
sigurjonn
-
kaupfelag
-
sasudurnesjum
-
stefanthor
-
fletcher
-
kosningar
-
tidarandinn
-
tommi
-
valdisig
-
vefritid
-
vestfirdir
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.7.): 6
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 384994
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Eldri færslur
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
