Viltu hærra bensínverð, aukna skatta á bíla og bann við risastórum orkusugum? Og banna nagladekk? Þá er VG flokkur fyrir þig

Verður að minnka bílaumferð? Keyrum við á risastórum orkusugum? Verður að skattleggja bíla og eldsneyti enn frekar? Á að leysa nagladekkjavandann með valdboði? - Ef svarið er já, þá er VG væntanlega flokkur fyrir þig.

Forræðishyggja og valdboð sýnast kjörorð dagsins hjá Vinstri grænum og eftir flokksþing um liðna helgi virðist sem ýmsum þyki nú nóg um þá framtíðarsýn sem birtist í ályktunum, stefnu og hugmyndum flokksins fyrir hönd okkar Íslendinga.

Ármann Jakobsson, einn helsti hugmyndafræðingur Vinstri grænna, setur fram athyglisverðar hugmyndir í nýrri grein um umhverfismál og svifrykið á Múrnum í dag.

Þar eru m.a. þessar hugmyndir reifaðar:

1. Það verður að minnka bílaumferð á götum Reykjavíkur.

2. Þjóðin þarf að skipta úr risavöxnu orkusugunum yfir í sparneytna bíla.

3. Það verður að efla almenningssamgöngur.

4. Það verður að skattleggja bíla og eldsneyti enn frekar, einkum með tilliti til orkuneyslu.

5. Það þarf að leysa nagladekkjavandann, með valdboði ef annað dugar ekki til.

Hrósa má Ármanni fyrir hreinskilnina, en ég ætla þó að leyfa mér að halda því fram að hugmyndafræðilegur ágreiningur kunni að vera um nokkrar þessara leiða. Ég er t.d. þeirrar skoðunar að við borgum alveg nógu mikið fyrir bensínið okkar og er ekki áhugamaður um að hækkað það, hvað þá auka skatta á bíla sem eru nú þegar úr öllu hófi hér á landi.

Og Ármann Jakobsson bætir við:



Auðvitað er óskemmtilegt að boða hér skatta og bönn. Hver er hrifinn af slíku? En því miður hefur almenn velmegun leitt þjóðina út í ógöngur. Gatnakerfið er að springa, hvert umferðarmannvirkið er reist á fætur öðru með tilheyrandi raski (ekki aðeins í Mosfellsbæ), mengun er hér úr öllu hófi, viðskiptahallinn eykst stöðugt (ekki hjálpa bílakaupin honum) og þannig mætti lengi telja. Bæði umhverfið og hagkerfið þurfa á því að halda að hér verði breytt um stefnu.

Verður þetta stefna ríkisstjórnarinnar eftir næstu kosningar?

Verður bensín hamstrað á næstunni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi Hrafnsson
Borgarfulltrúi og formaður borgarráðs

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband